Normal registration
03 Apr - 04 Jun 14:00
Event dates 05 Jun - 06 Jun

Mjölnir Open ungmenna 2021

Mjölnir Open ungmenna fer fram helgina 5.-6. júní en mótið er fyrir 5 til 17 ára ungmenni. Keppt er í sex aldursflokkum.

Mjölnir Open ungmenna fer fram helgina 5.-6. júní en mótið er fyrir 5 til 17 ára ungmenni. Keppt er í sex aldursflokkum (sjá neðar) og fer skráning fram á Smoothcomp.com. Þyngdarflokkar eru margir og það kann að vera að einhverjir þyngdarflokkar verða sameinaðir ef skráning í tiltekinn flokk er lítil (færri en 3 keppendur). Þá gætu keppendur mögulega verið færðir um aldurs- og/eða þyngdarflokk ef það er mikill þyngdarmunur.

Dagskrá

Laugardagur (5-11 ára)

Húsið opnar: kl. 10:00
Vigtun: kl. 10:15
Reglufundur 10:45
Mót hefst 11:00

Sunnudagur (12-17 ára)

Húsið opnar: kl. 10:00
Vigtun: kl. 10:15
Reglufundur 10:45
Mót hefst 11:00

Skráning

Skráning á mótið fer fram á Smoothcomp.com.
Skráningarfrestur til 4. júní.

Mótsgjald: 2.000 kr

Greiðsla fer fram í móttöku Mjölnis eða á mjolnir.felog.is og þarf að greiða áður en mótið hefst.

Keppendur eru svo vigtaðir á mótsdag og breytt verður þeim flokkum sem þarf.

Aldursflokkar

— 2014-2016 5-7 ára

— 2012-2013 8-9 ára

— 2010-2011 10-11 ára

— 2008-2009 12-13 ára

—2006-2007 14-15 ára

—2004-2005 16-17 ára

—2004-2007 Opinn flokkur

REGLUR 2021

2014-2016 (glímulengd 2 mínútur) 5-7 ára

Við keppni í þessum flokkum skal leggja höfuðáherslu á að passa upp á að fyrirbyggja meiðsli. Dómari hefur vald til þess að stöðva glímu hvenær sem á henni stendur til að forða keppendum frá meiðslum og er mælst til þess að hann geri það.

Leyfileg brögð:

Keppt er upp á stig í þessum aldursflokkum og er farið eftir reglum IBJJF (engin advantage stig verða þó gefin)

Óleyfileg brögð:

Engin uppgjafartök eru leyfileg í þessum aldursflokkum.

Bannað er að hoppa í guard (semsagt pulla guard með því að hoppa á andstæðing)

Öll önnur brögð sem eru óleyfileg í eldri aldursflokkum (hér að neðan) eru einnig óleyfileg hér.

2010-2011 og 2012-2013 (glímulengd 3 mínútur)

2006-2007 og 2008-2009 (glímulengd 4 mínútur)

Við keppni í þessum flokkum skal leggja höfuðáherslu á að passa upp á að fyrirbyggja meiðsli. Dómari hefur vald til þess að stöðva glímu hvenær sem á henni stendur til að forða keppendum frá meiðslum og er mælst til þess að hann geri það.

Leyfileg brögð:

Svæfingarlásar eru leyfðir („naktar“ þ.e. án fatnaðar) en skal miða við að ef að dómari telur að keppandi sé nálægt því að ná lásnum þá skal dómari stöðva glímuna og úrskurða viðkomandi sigurvegara.

Beinir handarlásar eru leyfðir sem og axlarlásar. Ef að dómari telur að keppandi sé nálægt því að ná lásnum þá skal dómari stöðva glímuna og úrskurða viðkomandi sigurvegara.

Óleyfileg brögð:

Úlnliðslásar eru óleyfilegir.

Allir fótalásar eru óleyfilegir, hvort sem um er að ræða beina eða snúandi.

Allir lásar sem fela í sér að snúa upp á háls/hrygg eða setja háls/hrygg í óþægilega stöðu eru óleyfilegir.

Bannað er að hoppa í guard (semsagt pulla guard með því að hoppa á andstæðing).

Öll önnur brögð sem eru óleyfileg í eldri aldursflokkum (hér að neðan) eru einnig óleyfileg hér.

2004-2005 (glímulengd 5 mínútur)

Leyfileg brögð:

Öll svæfingartök ("naktar" þ.e. án fatnaðar).

Allir handarlásar, axlarlásar og úlnliðslásar.

Beinir fótalásar (straight footlocks, e.g. Achilles lock, Estima lock).

Óleyfileg brögð:

Það má ekki kýla, sparka, bíta eða pota í líkamsop.

Það má ekki rífa í hár.

Það má ekki pota í sár eða vísvitandi valda skaða.

Það má ekki reyna að snúa háls í óþægilega stöðu.

að má ekki framkvæma lás sem snýr upp á hryggjaliði.

Það má ekki framkvæma snúandi fótalása.

Það má ekki lyfta manni sem liggur á baki í loftið og skella honum í gólfið.

Ef gripið er í fingur þá skal grípa í að minnsta kosti þrjá fingur sem liggja saman í einu gripi.

Bannað er að hoppa í guard (semsagt pulla guard með því að hoppa á andstæðing)

Það má vera að ofangreindur listi sé ekki tæmandi og því skal spyrja út í vafamál með hvort eitthvað megi eður ei þegar farið verður yfir reglur á mótsdegi. Dómarar áskilja sér rétt til að banna ákveðin brögð þó þau hafi ekki verið tilgreind á ofangreindum lista. Það er ítrekað við keppendur að sýna ávallt íþróttamannslega hegðun og er reiknað með því að keppendur hafi vit og þekkingu til að framkvæma ekki aðgerðir sem líklegt er að valdi líkamlegum skaða. Ef að dómari telur að keppandi hafi brotið af sér með því að stofna vísvitandi til líkamsskaða á öðrum keppanda þá skal þeim keppanda umsvifalaust vísað úr keppni.

Stigagjöf er hefðbundin samkvæmt reglum IBJJF.

Athugið að aldursflokkar geta breyst eftir skráningarfjölda keppenda.

ATH: Forráðarmaður verður að skrá barn eða samþykkja skráningu.

Entries

  • Stelpur 2000 ISK
    4-17 ára
  • Strákar 2000 ISK
    4-17 ára

Cancel/Refund policy