Mjölnir Open 16
Mjölnir Open 16, laugardaginn 9. apríl kl. 11
Mjölnir Open fullorðinna hefst kl. 11 laugardaginn 9. apríl.
Vigtun verður í Mjölnishöllinni föstudaginn 8. apríl milli kl. 17:00 - 19:00 en einnig er hægt að vigta sig á keppnisdegi.
Skráningargjald er 4.000 kr. og fæst ekki endurgreitt ef viðkomandi hættir við þátttöku. Skráningu lýkur fimmtudaginn 7. apríl kl. 23:00. Aðgangseyrir fyrir áhorfendur er 500 kr.
Skráning á mótið fer einungis fram í gegnum Smoothcomp en greiðsla mótgjalds fer fram í afgreiðslu Mjölnis eða á mjolnir.felog.is og þarf að greiða áður en keppni hefst. Athugið, allir keppendur þurfa að skrá sig í gegnum Smoothcomp en skráning telst ekki endanleg fyrr en búið er að greiða mótsgjald.
Dagskrá-
Húsið opnar kl. 10:00
-Reglufundur kl. 10:45 (skyldumæting liðsstjóra).
-Mótið hefst kl. 11:00
Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum karla:
Opinn flokkur karla
+99 kg karla
-99 kg karla
-88 kg karla
-77 kg karla
-66 kg karla
Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum kvenna:
Opinn flokkur kvenna
+70 kg kvenna
- 70 kg kvenna
- 60 kg kvenna
Keppnisreglur á Mjölnis Open eru hér: https://www.mjolnir.is/static/files/Keppnisreglur/keppnisreglur-mjolnir-open.pdf