Normal registration
09 Apr - 10 May 23:03
Event starts 13 May

Mjölnir Open 17

Mjölnir Open 17, laugardaginn 13. maí kl. 11

Mjölnir Open fullorðinna hefst kl. 11 laugardaginn 13. maí. 
Vigtun verður í Mjölnishöllinni föstudaginn 12. maí milli kl. 17:00 - 19:00 en einnig er hægt að vigta sig á keppnisdegi frá kl. 9:30 til 10:30.

Skráningargjald er 4.000 kr. og fæst ekki endurgreitt ef viðkomandi hættir við þátttöku. Skráningu lýkur miðvikudaginn 10. maí kl. 23:00. Aðgangseyrir fyrir áhorfendur er 500 kr.

Skráning á mótið fer einungis fram í gegnum Smoothcomp en greiðsla mótgjalds fer fram í afgreiðslu Mjölnis eða í Sportabler og þarf að greiða áður en keppni hefst. Athugið, allir keppendur þurfa að skrá sig í gegnum Smoothcomp en skráning telst ekki endanleg fyrr en búið er að greiða mótsgjald.

Dagskrá-

Húsið opnar kl. 9:00

-Vigtun lýkur kl. 10:30

-Reglufundur kl. 10:45 (skyldumæting liðsstjóra).

-Mótið hefst kl. 11:00

Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum karla:

Opinn flokkur karla
+99 kg karla
-99 kg karla
-88 kg karla
-77 kg karla
-66 kg karla

Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum kvenna:

Opinn flokkur kvenna
+70 kg kvenna
- 70 kg kvenna
- 60 kg kvenna

Keppnisreglur á Mjölnis Open eru hér: https://www.mjolnir.is/static/files/Keppnisreglur/keppnisreglur-mjolnir-open.pdf

Entries

Cancel/Refund policy