Normal registration
01 Oct - 25 Oct 14:01
Late registrations
25 Oct - 26 Oct 18:00
Event starts 27 Oct

Grettismót Mjölnis 2018

Grettismót Mjölnis 2018 fer fram laugardaginn 27. október kl. 11.

Grettismót Mjölnis fer fram laugardaginn 27. október. Á Grettismótinu er keppt í brasilísku jiu-jitsu (BJJ) og keppt er í galla (Gi). Keppt verður í fimm þyngdarflokkum karla og þremur þyngdarflokkum kvenna auk opinna flokka.

Mótið hefst kl. 11:00 í Mjölni en keppendur eru beðnir um að mæta kl. 10:00. Vigtað er í gi á mótsdag. Aldurstakmark keppenda er 18 ár en 16-17 ára geta keppt að fengnum leyfi þjálfara og forráðamanns.

Á mótinu verður keppt eftir reglum IBJJF samkvæmt brúnbeltingum og upp, sjá nánar hér: http://ibjjf.com/wp-content/uploads/2015/04/RulesIBJJF_v4_en-US.pdf

Öll svæfingartök eru leyfð, með og án fatnaðar. Allir handarlásar, úlnliðslásar og axlarlásar eru leyfðir og allir beinir fótalásar og toe hold. Biðjum keppendur um að kynna sér reglurnar fyrir mótið.

Skráning fer fram í gegnum Smoothcomp hér en skráningargjald er 4.000 kr. og fæst ekki endurgreitt. Hægt er að greiða í afgreiðslu Mjölnis eða í gegnum mjolnir.felog.is. Skráningarfrestur rennur út kl. 23 fimmtudaginn 25. október.

Aðgangseyrir fyrir áhorfendur kr. 500.

Upptalning á þyngdarflokkum:

Karlar: -68 kg, -79 kg, -90 kg, -101 kg, +101 kg og Opinn flokkur karla

Konur: -64 kg, -74 kg, +74 kg og Opinn flokkur kvenna

Greiðsla fyrir mótið þarf að berast fyrir kl. 19 föstudaginn 26. október. Hægt er að greiða í afgreiðslu Mjölnis eða með því að millifæra á neðangreindan reikning og senda kvittun á [email protected]. Keppnisgjald er 4000 kr. og fæst ekki endurgreitt ef keppandi hættir við þátttöku. Reikningsnúmer: 0513-26-531015 Kennitala: 531015-0960 Mikilvægt að senda kvittun á [email protected].

Entries

  • Opinn flokkur karla 0 ISK
  • Opinn flokkur kvenna 0 ISK

Cancel/Refund policy