Normale registratie
20 Feb - 24 Mar 23:03
Evenement start op 26 Mar

Hólmganga nogi 2022

Hólmganga 26. mars!

Mjölnir verður með innanfélagsmót laugardaginn 26. mars. Hólmgangan er því fyrir alla meðlimi Mjölnis og verður keppt í nogi að þessu sinni.

Mótið hefst kl. 11 og stendur fram eftir degi. Skráningu lýkur kl. 23 fimmtudaginn 24. mars og er ekki hægt að skrá sig þegar skráningarfresti er lokið. Skráningargjald er 1.000 kr.

Skráning á mótið fer einungis fram í gegnum Smoothcomp en greiðsla mótgjalds fer fram í afgreiðslu Mjölnis eða á mjolnir.felog.is og þarf að greiða áður en keppni hefst. Athugið, allir keppendur þurfa að skrá sig í gegnum Smoothcomp en skráning telst ekki endanleg fyrr en búið er að greiða mótsgjald.

Það verður engin formleg vigtun og treystum við því að keppendur skrái sig í réttan flokk. Við munum einnig mögulega beltaskipta flokkum ef keppendur eru nægilega margir í hverjum flokki. Þá verður einnig reynt að skipta hverjum flokki upp í riðla þannig að keppendur fái sem flestar glímur.

Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum karla:
+99 kg karla
-99 kg karla
-88 kg karla
-77 kg karla
-66 kg karla

Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum kvenna:
+70 kg kvenna
- 70 kg kvenna
- 60 kg kvenna

Mótið er hugsað sem upphitunarmót fyrir Mjölnir Open og eru því sömu reglur á Hólmgöngunni eins og á Mjölni Open. Sjá reglur hér: https://www.mjolnir.is/static/files/Keppnisreglur/keppnisreglur-mjolnir-open.pdf

Contactgegevens

Categorieën

Cancel/Refund policy